Beint í efni

Ný stjórn Samtaka iðnaðarins

Ný stjórn SI var kosin á aðalfundi sem fór fram í Húsi atvinnulífsins.

Mikil uppsöfnuð þörf fyrir innviðauppbyggingu

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun var tilkynnt um úrslit kosninga til stjórnar. Kosningaþátttaka var 84,95%. Kosið var um sæti formanns og fimm almenn stjórnarsæti. Eitt framboð barst til formanns og níu framboð bárust til almennra stjórnarsæta.

Árni Sigurjónsson var endurkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins með 98,05% atkvæða.

Þau sem hlutu flest atkvæði og setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára eru:

  • Arna Arnarsdóttir, gullsmiður
  • Bergþóra Halldórsdóttir, Borealis Data Center
  • Hjörtur Sigurðsson, VSB verkfræðistofa
  • Jónína Guðmundsdóttir, Coripharma
  • Vignir Steinþór Halldórsson, Öxar Byggingafélag

Fyrir í stjórn Samtaka iðnaðarins eru:

  • Guðrún Halla Finnsdóttir, Norðurál
  • Karl Andreassen, Ístak
  • Magnús Hilmar Helgason, Launafl
  • Þorsteinn Víglundsson, Eignarhaldsfélagið Hornsteinn
Ný stjórn Samtaka iðnaðarins - Samtök Iðnaðarins