Beint í efni

Nýjar vörur til sýnis á Hönn­un­ar­Mars

Í tengslum við HönnunarMars ætla AgustaV og Kjartan Oskarsson Studio að opna nýtt sýningarrými að Funahöfða 3.

Nýjar vörur til sýnis á HönnunarMars

Í tengslum við HönnunarMars ætla AGUSTAV og Kjartan Oskarsson Studio að opna nýtt sýningarrými að Funahöfða 3 í Reykjavík. Opnunargleði verður föstudaginn 16. mars kl. 17-20 en annars er sýningin opin fimmtudaginn 15. mars kl. 10-18, föstudaginn 16. mars kl. 10- 18, laugardaginn 17. mars kl. 10-18 og sunnudaginn 18. mars kl. 12-18.

Heildstætt hönnunar- og framleiðsluferli endurspeglast í uppsetningunni á sýningunni en innangengt er af verkstæðinu inn á sýningarrýmið og hægt er að komast í bein tengsl við uppruna vörunnar. Nýjar vörur verða á sýningunni.

Nýjar vörur til sýnis á HönnunarMars - Samtök Iðnaðarins