Samtök iðnaðarins stóðu fyrir fundi í Húsi atvinnulífsins í morgun þar sem kynnt var nýtt verkefni um loftslagsmál framleiðslufyrirtækja sem unnið er í samstarfi við Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð.
Verkefnið er hugsað sem hvatning til félagsmanna til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á eigin forsendum og sýna þar með frumkvæði og ábyrgð gagnvart umhverfinu og samfélaginu.
Hér fyrir neðan er hægt að nálgast glærur fundarins:
Dagskrá
- Opnun fundar – Gestur Pétursson, forstjóri Elkem og formaður Framleiðsluráðs SI
- Kynning á loftslagsverkefni Samtaka iðnaðarins og Festu – Guðrún Birna Jörgensen, viðskiptastjóri á framleiðslusviði SI
- Ávinningur fyrirtækja af því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda – Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri Festu
- Reynsla Coca Cola European Partners á Íslandi af loftslagsmælingum – Axel Tamzok frá CCEP.







