Beint í efni

Opið fyrir umsóknir í Ask - mann­virkja­rann­sókn­ar­sjóð

Opið er fyrir umsóknir í Ask - mannvirkjarannsóknarsjóð til 31. október.

Askur úthlutar 95 milljónum í mannvirkjarannsóknir

Opið er fyrir umsóknir í Ask -mannvirkjarannsóknarsjóð. Hægt er að nálgast umsóknarform og upplýsingar á vef sjóðsins https://hms.is/mannvirki/askur. Þar koma fram áhersluþættir ársins og starfsreglur sjóðsins ásamt kynningarmyndbandi um umsóknarferlið. Þeir sem hafa áhuga á að auka þekkingu, gæði og nýsköpun á sviði mannvirkjagerðar geta sótt um. Frestur til og með 31. október.

Myndin hér fyrir ofan er tekin við afhendingu á styrkjum úr síðustu úthlutun sjóðsins þegar 23 verkefni hlutu styrki.

Opið fyrir umsóknir í Ask - mannvirkjarannsóknarsjóð - Samtök Iðnaðarins