Fulltrúum SI var boðið í vikunni í fyrstu opinberu smökkunina í Evrópu á vistkjöti sem er ræktað úr frumum úr japanskri kornhænu. Það voru ORF Líftækni sem er aðildarfyrirtæki SI og ástralska nýsköpunarfyrirtækið Vow sem kynntu vistkjötið en greint var meðal annars frá því að framleiðsla vistkjötsins krefjist minna landsvæðis og vatns.
Myndir/Thelma Arngríms










