Beint í efni

Óskað eftir ábendingum fyrir Hönn­un­ar­verð­laun Íslands

Hægt er að senda inn ábendingar til Hönnunarverðlauna Íslands 2023 fram til miðnættis 6. september.

Óskað eftir ábendingum fyrir Hönnunarverðlaun Íslands

Opnað hefur verið fyrir ábendingar til Hönnunarverðlauna Íslands 2023 sem afhent verða 9. nóvember í Grósku. Verðlaunin verða veitt í tíunda sinn í ár og í tilefni af því hefur verðlaunaflokkum verið fjölgað í þrjá undir heitunum Vara // Staður // Verk. Hægt er að senda inn ábendingar til miðnættis 6. september á vef Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs: https://www.honnunarmidstod.is/keppnir

Dómnefnd tilnefnir þrjú verkefni í hverjum flokki og af þeim hlýtur einn sigurvegari í hverjum flokki Hönnunarverðlaun Íslands 2023 sem eru hvor tveggja heiðurs- og peningaverðlaun. Að auki verða veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun sem er viðurkenning veitt fyrirtæki sem hefur hönnun og arkitektúr að leiðarljósi í starfsemi sinni til að auka gæði, verðmætasköpun og samkeppnishæfni. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina.

Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi nýleg verkefni. Við val á verðlaunahöfum er verið er að leita að verkefnum sem skara fram úr og geta staðið sem fulltrúar þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. Verkefnin þurfa að endurspegla gæði og vera áhrifarík, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu, áherslu á fagurfræði og fagmennsku í vinnubrögðum. Einnig er horft til hvort verkefnin séu notendavæn, nýskapandi og hafi jákvæð áhrif á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.

Myndin hér fyrir ofan er frá afhendingu viðurkenningar fyrir bestu fjárfestingu í hönnun sem Fólk Reykjavík hlaut á síðasta ári. Mynd: Aldís Pálsdóttir.

Óskað eftir ábendingum fyrir Hönnunarverðlaun Íslands - Samtök Iðnaðarins