Opnað hefur verið fyrir ábendingar til Hönnunarverðlauna Íslands 2022. Hér er hægt er að setja inn ábendingar til miðnættis mánudagsins 29. ágúst. Hægt er að benda á verk í tveimur flokkum, Hönnunarverðlaun Íslands 2022 og Besta fjárfesting ársins 2022 í hönnun. Vinningshafar geta komið úr öllum greinum hönnunar.
Á vef Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs segir að Hönnunarverðlaun Íslands varpi ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar og arkitektúrs og beini sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða sé veitt mikilvæg viðurkenning
Hönnunarverðlaun Íslands eru heiðurs- og peningaverðlaun, veitt hönnuði, hönnunarteymi eða -stofu fyrir einstakan hlut, verkefni eða safn verka sem þykja skara fram úr. Hönnuðir þurfa að vera félagar í einu af aðildarfélögum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs eða fagmenn á sínu sviði til að hljóta verðlaunin. Hönnunarverðlaun Íslands eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 krónur.
Besta fjárfesting í hönnun er viðurkenning sem var veitt var í fyrsta sinn 2015 og veitt er fyrirtæki sem hefur með eftirtektarverðum hætti fjárfest í hönnun og arkitektúr eða innleitt aðferðir hönnunar í grunnstarfsemi sína. Fyrirtæki sem eiga þess kost að hljóta viðurkenninguna hafa hönnun og arkitektúr að leiðarljósi í starfsemi sinni til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina.
Hönnunarverðlaun Íslands 2021 hlaut plötuumslag Hjaltalín ∞. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, þáverandi ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti viðurkenninguna til Sigurðar Oddssonar, hönnuðar, og Matthíasar Rúnars Sigurðssonar, myndhöggvara. Gabríel Benedikt Bachmann, þrívíddarhönnuður, vann einnig að gerð plötuumslagsins. Með þeim á myndinni er einnig Lilja Alfreðsdóttir, þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra
CCP hlaut viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun árið 2021. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, afhenti viðurkenninguna á Hönnunarverðlaunum Íslands sem fram fór í Grósku. Á myndinni eru Bergur Finnbogason, listrænn stjórnandi CCP, og Sæmundur Hermannsson, vörumerkjastjóri CCP, með viðurkenninguna ásamt Lilju Alfreðsdóttur, þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra, Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra SI, og Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, þáverandi iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.



