Beint í efni

Óskað eftir til­nefn­ing­um fyrir Kuðunginn 2021

Óskað er eftir tilnefningum fyrir umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2021.

Óskað eftir tilnefningum fyrir Kuðunginn 2021

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2021. Kuðungurinn verður afhentur i tengslum við Dag umhverfisins líkt og kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta bæði tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.

Tillögur skulu berast umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu eigi síðar en 25. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið urn@urn.is eða með pósti í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Upplýsingar um fyrri verðlaunahafa

Efla hlaut viðurkenninguna árið 2019 og er myndin hér fyrir ofan frá afhendingu.

Kudungurinn-2021

Óskað eftir tilnefningum fyrir Kuðunginn 2021 - Samtök Iðnaðarins