Beint í efni

Rafræn skráning bygg­ing­ar­stjóra og iðnmeistara

Fyrsti hluti í rafrænum byggingarleyfisumsóknum hefur verið virkjaður á vef Reykjavíkurborgar.

Fundur um nýjar kröfur í flokkun byggingarúrgangs

Nú er hægt að skrá byggingastjóra og iðnmeistara rafrænt á vef Reykjavíkurborgar. Þetta er fyrsti hluti vegferðar Reykjavíkurborgar að rafrænum byggingarleyfisumsóknum. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar.

Skráningin fer fram á Mínum síðum, þar eru skjölin fyllt út og loks undirrituð rafrænt. Upplýsingar eru sóttar úr réttindagátt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þannig að einungis er hægt að skrá einstaklinga með viðeigandi réttindi byggingarstjóra og iðnmeistara.

Ef breytingar verða á byggingarstjórum eða iðnmeisturum þarf enn sem komið er að tilkynna það á pappír. Unnið er að því að gera þessa skráningu líka rafræna. Stefnt er að því að umsókn um byggingarleyfi verði alfarið orðin rafræn fyrir lok þessa árs.

Rafræn skráning byggingarstjóra og iðnmeistara - Samtök Iðnaðarins