Beint í efni

Rafrænn fundur með stjórnendum Sorpu vegna gjald­skrár­hækk­ana

Rafrænn fundur fyrir félagsmenn SI með stjórnendum Sorpu 23. nóvember kl. 15-16.

Rafrænn fundur með stjórnendum Sorpu vegna gjaldskrárhækkana

Samtök iðnaðarins boða félagsmenn til rafræns fundar með stjórnendum Sorpu fimmtudaginn 23. nóvember kl. 15-16 þar sem farið verður yfir breytingar á gjaldskrá Sorpu. Sorpa hefur boðað hækkanir á gjaldskrá sem mun auka tekjur Sorpu um rúm 11% sem talið er vera í samræmi við hækkanir verðlags. Gjaldskrárbreytingin kveður hins vegar á um nokkrar tilfærslur milli flokka vegna samdráttar í magni til urðunar með tilkomu útflutnings á úrgangi til orkuvinnslu sem hefur þær afleiðingar að kostnaður við urðun hækkar.

Breytt gjaldskrá Sorpu mun að óbreyttu taka gildi 1. janúar 2024.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn sem fer fram á Teams.

Rafrænn fundur með stjórnendum Sorpu vegna gjaldskrárhækkana - Samtök Iðnaðarins