Beint í efni

Raf­verk­tak­ar fjölmenntu á fagsýningu í Frankfurt

Samtök rafverktaka, SART, stóðu fyrir ferð á sýninguna Light+building í Frankfurt.

Rafverktakar fjölmenntu á fagsýningu í Frankfurt

Samtök rafverktaka, SART, stóðu fyrir ferð á fagsýninguna Light+building sem var haldin í Frankfurt í Þýskalandi 2.-6. október eftir að sýningunni hafði verið frestað ítrekað vegna heimsfaraldurs.

Íslenskir rafverktakar fjölmenntu á sýninguna, en frá SART fóru 24 aðilar til Frankfurt og kynntu sér það helsta sem íslenskir birgjar ásamt þeirra framleiðendum vildu vekja athygli á. Einnig var boðið upp á dagskrá á kvöldin.



Rafverktakar fjölmenntu á fagsýningu í Frankfurt - Samtök Iðnaðarins