Beint í efni

Raf­verk­tak­ar funda um nýtt sam­skipta­kerfi

Góð mæting var á fund Félags löggiltra rafverktaka í morgun þar sem fjallað var um nýtt samskiptakerfi.

Rafverktakar funda um nýtt samskiptakerfi

Góð mæting var á fund Félags löggiltra rafverktaka í morgun þar sem fjallað var um nýtt samskiptakerfi Veitna sem verið er að innleiða. Fundurinn fór fram í Rafmennt á Stórhöfða.

Á fundinum fluttu erindi Þorvaldur Finnbogason, rekstrarstjóri mæla- og notendaþjónustu Veitna, um samvinnu Veitna og rafverktaka. Þá svaraði Þorvaldur fyrirspurnum ásamt þeim Sigurjóni Kr. Sigurjónssyni, forstöðumanni reikninga- og notendaþjónustu OR og Rúnari Geir Þorsteinssyni, umsjónarmanni rafmagnsþjónustu Veitna.

Fundur-loggiltra-rafverktaka-21-11-2018-2-
Þorvaldur Finnbogason, rekstrarstjóri mæla- og notendaþjónustu Veitna, kynnti samvinnu Veitna og rafverktaka.
Rafverktakar funda um nýtt samskiptakerfi - Samtök Iðnaðarins