Beint í efni

Saman gegn sóun

Fenúr og Umhverfisstofnun standa fyrir ráðstefnu og sýningu með yfirskriftinni Saman gegn sóun.

Saman gegn sóun

Saman gegn sóun er yfirskrift ráðstefnu sem Fenúr og Umhverfisstofnun standa fyrir á föstudaginn. Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður framleiðslu- og matvælasviðs SI, verður fundarstjóri á ráðstefnunni sem er kl. 8.30-14.00 á Nauthóli í Nauthólsvík. Skráning á ráðstefnuna fer fram á fenur@fenur.is. Sýning með sömu yfirskrift verður opnuð kl. 14.00 í Perlunni sama dag.

Dagskrá:

Kl. 8:30 Setning ráðstefnu

  • Saman gegn sóun – Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
  • Kolefnisjafnað sveitarfélag – Guðmundur H. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vistorku
  • Hringrásarhagkerfið á Íslandi – Lúðvík E. Gústafsson, Samtök sveitarfélaga

Kl. 10:15 Kaffi

  • Hvernig má lágmarka umhverfisáhrif ferðamanna – Icelandair Hotels
  • Samkeppni í úrgangsmálum – Magnús Þór Kristjánsson, Samkeppniseftirlitið
  • Markmið í úrgangsmálum, eru þau raunhæf? – Helgi Lárusson, FENÚR
  • Waste as a resource for innovation – Ingunn Gunnarsdóttir, Umhverfisstofnun

Kl. 12:00 Matur

  • Hvernig má minnka matarsóun í stóreldhúsi? – Vigdís Stefánsdóttir, LHS
  • Aðgerðir til að draga úr burðarplastpokanotkun.
  • Næstu skref og aðgerðaáætlun – Hólmfríður Þorsteinsdóttir, Umhverfisstofnun
  • Tilraunaverkefni um burðarplastpokalaust sveitarfélag – Menja von Schmalensee, Stykkishólmur
  • Fatasóun á Íslandi og hinum Norðurlöndunum – Stefán Gíslason, UMÍS

14:00 Ráðstefnu lýkur

Saman gegn sóun - Samtök Iðnaðarins