Staðlaráð Íslands og RAFMENNT hafa gert með sér samning sem auðveldar nemendum og kennurum verkmenntaskóla í rafiðnum aðgang að staðlinum ÍST 200 um raflagnir bygginga. RAFMENNT gerir samninginn fyrir hönd Samtaka rafverktaka, SART, og Rafiðnaðarsambands Íslands, RSÍ. Staðlaráð Íslands gerir samninginn fyrir hönd Fagstaðlaráðs í upplýsingatækni, FUT.
Í samningnum felst að RAFMENNT greiðir fyrir rafrænan aðgang nemenda og kennara að staðlinum. Aðgangurinn er í gegnum vefsíðu og byggist á notandanafni og lykilorði og varir meðan nemandi þarf á staðlinum að halda í námi sínu.
Það voru Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, og Þór Pálsson, framkvæmdastjóri RAFMENNTAR, sem undirrituðu samninginn.




