Skráning er hafin á STEFNUmót íslensks byggingariðnaðar sem fram fer 4. Nóvember nk. á Grand Hótel.
Um er að ræða 300 manna heilsdags þing þar sem aðilar þvert á íslenskan byggingariðnað munu rýna í stöðu byggingariðnaðarins í kjölfar efnahagshruns og skoða mögulegar umbætur og framfarir.
Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni „Samstarf er lykill að árangri“ sem er samvinnuverkefni SI, Mannvirkjastofnunar, Félags Byggingafulltrúa, Nýsköpunarmiðstöðvar og Arkitektfélags Íslands.
STEFNUmótið er haldið í samvinnu við Siðfræðistofnun og Félagsvísindastofnun HÍ sem munu leggja spurningakannanir fyrir þátttakendur en afraksturinn verður nýttur til að móta skýrari stefnu og forgangsröðun meðal þeirra aðila sem starfa innan byggingariðnaðarins.
Dagskrá STEFNUmótsins stendur frá kl. 9-17 og í kjölfarið verður boðið til móttöku þar sem léttar veitingar verða og Ari Eldjárn stígur á stokk. Þátttaka í viðburðinum er endurgjaldslaus og er jafnframt boðið upp á hádegisverð og kaffiveitingar.
Þín rödd skiptir máli ! Skráðu þig á STEFNUmótið HÉR
Samstarf er lykill að árangri
Samstarf er lykill að árangri
Skráning er hafin á STEFNUmót íslensks byggingariðnaðar sem fram fer 4. nóvember nk. á Grand Hótel.

Tengt efni
Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Halda þarf sérstöðu Íslands á lofti við mótun umhverfisregluverks í Evrópu
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði umræðum á Umhverfisdegi atvinnulífsins um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.

Aðgangur stóriðju að endurnýjanlegri orku eitt stærsta framlag Íslands til loftlagsmála
Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá SI, flutti erindi um sérstöðu Íslands og samkeppnishæfni stóriðju á Umhverfisdegi atvinnulífsins.
