Beint í efni

Samtal um íslenska framleiðslu og hönnun

SI, Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda og SAMARK boða til samtals um íslenska framleiðslu og hönnun á fundi miðvikudaginn 28. nóvember.

Samtal um íslenska framleiðslu og hönnun

Samtök iðnaðarins, Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda og Samtök arkitektastofa, SAMARK, boða til samtals um íslenska framleiðslu og hönnun miðvikudaginn 28. nóvember nk. kl. 12.00-14.00 í Hyl í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

Markmið samtalsins er að auka vitneskju um íslenska framleiðslu og hönnun á húsgögnum og innréttingum.

Dagskrá

  • Setning fundar og fundarstjórn – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Örkynningar frá framleiðendum – AGUSTAV, Axis, Á. Guðmundsson, GÁ húsgögn, Sýrusson
  • Mikilvægi íslenskrar hönnunar – Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands
  • Umræður

Boðið verður upp á léttan hádegisverð. Áhugasamir skrái sig fyrir þriðjudaginn 27. nóvember.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

islenskt-raudur-texti.png
Samtal um íslenska framleiðslu og hönnun - Samtök Iðnaðarins