Beint í efni

Samtök sprota­fyr­ir­tækja efna til fundar um nýsköpun

Samtök sprotafyrirtækja efnir til opins fundar næstkomandi miðvikudag þar sem fjallað verður um nýsköpun.

Nýsköpun er ekki lúxus heldur nauðsyn

Opinn fundur Samtaka sprotafyrirtækja, SSP, verður haldinn miðvikudaginn 5. febrúar kl. 16.00 í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35. Nýsköpun, fjármögnun, heimsmarkmið SÞ og spennandi tækifæri í matvælaframleiðslu á Íslandi m.t.t. sérstöðu landsins. Þetta verður meðal viðfangsefna á opnum aðalfundi Samtaka sprotafyrirtækja þar sem fluttir verða áhugaverðir fyrirlestrar. Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Dagskrá

16.00-16.30 Aðalfundur SSP

1. Kosinn fundarstjóri

2. Kosinn ritari fundarins

3. Formaður flytur skýrslu stjórnar og flytur tillögur að verkefnaskrá næsta starfsárs

4. Breytingar starfsreglna, ef fyrir liggja

5. Kosning stjórnar:

a) formaður til eins árs

b) tveir meðstjórnendur og tveir til vara til eins árs

6. Lýst stjórnarkjöri

7. Önnur mál

16.30-18.00 Fyrirlestrar og framsögur

  • Ár nýsköpunar og sprotafyrirtæki - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Samfélagsábyrgð, nýsköpun og sprotafyrirtæki - Hrund Gunnsteinssdóttir, framkvæmdastjóri Festu
  • Nýsköpun og tækifæri í matvælaframleiðslu - Sigurður Markússon, jarðefnafræðingur hjá Landsvirkjun
  • Ankeri - Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri Ankeri

Fyrir frekari upplýsingar um fundinn er hægt að hafa samband við Eddu Björk Ragnarsdóttur, viðskiptastjóra á hugverkasviði SI, edda@si.is.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Samtök sprotafyrirtækja efna til fundar um nýsköpun - Samtök Iðnaðarins