Beint í efni

SI fagna undirritun tví­skött­un­ar­samn­ings við Japan

Samtök iðnaðarins fagna undirritun tvísköttunarsamnings íslenskra stjórnvalda við Japan.

SI fagna undirritun tvísköttunarsamnings við Japan

Samtök iðnaðarins fagna undirritun tvísköttunarsamnings íslenskra stjórnvalda við Japan en samningurinn var undirritaður í vikunni af utanríkisráðherra og sendiherra Japans á Íslandi. Samtök iðnaðarins telja að samningar af þessum toga bæti starfsumhverfi fyrirtækja. Eitt af helstu hagsmunamálum Samtaka leikjaframleiðenda, IGI, á síðasta ári var tvísköttunarsamningur við Japan þar sem Japan er mikilvægur markaður fyrir leikjaframleiðendur. IGI er starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins.

Á vef Stjórnarráðs Íslands kemur fram að á næstu mánuðum muni stjórnvöld vinna að fullgildingu samningsins og er vonast til að samningurinn komi til framkvæmda 1. janúar 2019.

Mynd af vef Stjórnarráðs Íslands.

SI fagna undirritun tvísköttunarsamnings við Japan - Samtök Iðnaðarins