Beint í efni

SI telja svigrúm til frekari lækkunar stýrivaxta

Í nýrri greiningu SI kemur fram að samtökin telja fulla ástæðu til frekari lækkunar stýrivaxta.

Erlendar fjárfestingar mótvægi við niðursveifluna

Samtök iðnaðarins telja að full ástæða sé fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans að stíga annað skref í lækkun stýrivaxta við næstu vaxtaákvörðun sem kynnt verður 28. ágúst nk. Skýr merki eru um samdrátt í hagkerfinu. Verðbólga og verðbólguvæntingar hafa haldist við markmið um nokkurn tíma og gefur það Seðlabankanum svigrúm til að lækka vexti til þess að hjálpa fyrirtækjum og heimilum að takast á við niðursveifluna. Þetta kemur fram í nýrri greiningu SI sem ber yfirskriftina Seðlabankinn til bjargar.

Þá kemur fram í greiningunni að Seðlabankinn hafi lækkað vexti um 0,75 prósentur síðan í maí á þessu ári. Meginvextir Seðlabankans, þ.e. vextir á sjö daga bundnum innlánum, séu nú 3,75% og nægt svigrúm til að lækka þá frekar að mati Samtaka iðnaðarins. Telja samtökin að dýpt niðursveiflunnar sem nú sé hafin í efnahagslífinu velti m.a. á því hversu hratt verði brugðist við í hagstjórn. Skipti þar miklu máli hvort peningastefnunefnd Seðlabankans lækki stýrivexti bankans nægjanlega hratt og mikið.

Skýr merki um samdrátt

Í greiningunni kemur fram að skýr merki séu um samdrátt eftir átta ára samfelldan hagvöxt. Fækkun ferðamanna um 13% á fyrstu sjö mánuðum þessa árs, atvinnuleysi 3,4% í júlí á landinu öllu í samanburði við 2,2% í sama mánuði í fyrra og dregið hefur úr innflutningi vinnuafls á þessu ári. Þá sé samdráttur í sementssölu og innflutningi byggingarefnis ásamt fækkun skoðaðra krana merki um breyttan gang í fjárfestingu í hagkerfinu. Samhliða þessari þróun hafi hægt á vexti einkaneyslu.

Atvinnuleysi-agust-2019

Verðbólga við 2,5% markmið

Í greiningunni segir að verðbólgan hafi náð hámarki í desember síðastliðnum þegar hún mældist 3,7% en hafi hjaðnað síðan og mælist nú 3,1%. Þá segir að líklegt sé að verðbólgan halda áfram að hjaðna á næstunni. Líkt og peningastefnunefnd Seðlabankans hafi bent á í yfirlýsingum sínum undanfarið sé svigrúm bankans til að mæta efnahagssamdrættinum töluvert, sérstaklega þegar verðbólga og verðbólguvæntingar haldast við verðbólgumarkmið bankans. Þróun verðbólgu og verðbólguvæntinga undanfarið sé í þessu ljósi sérstakt fagnaðarefni en hún skapi Seðlabankanum tækifæri til að beita hagstjórnartækjum sínum til þess að milda niðursveifluna í efnahagslífinu og hjálpa þannig bæði fyrirtækjum og heimilum að takast á við efnahagssamdráttinn.

Verdbolga-og-verdbolguvaentingar

Hér er hægt að nálgast greiningu SI í heild sinni.

SI telja svigrúm til frekari lækkunar stýrivaxta - Samtök Iðnaðarins