Skráning er hafin á Umhverfisdag atvinnulífsins sem verður haldinn miðvikudaginn 9. október næstkomandi í Hörpu. Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu. Fundarstjóri er Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri Samtaka iðnaðarins í menntamálum. Dagskrá Setning - Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Umhverfismál og auðlindanýting á Norðurslóðum - Heiðar Guðjónsson, formaður Efnahagsráðs Norðurskautsins. Loftslagsbreytingar, lífríki hafsins og auðlindir - Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Loftslagsbreytingar og fjárfestingar - Brynjólfur Stefánsson, sjóðsstjóri hjá Íslandssjóðum. Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019 - Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin. Kaffihlé kl. 10-10.15 Samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir - Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður samstarfsvettvangsins. Jákvæðar fyrirmyndir - Októ Einarsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar, Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, og Þorsteinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri Farfugla. Úrgangsmál, samkeppni og hringrásarhagkerfið - Bryndís Skúladóttir, verkfræðingur hjá VSÓ. Orkuskipti í flutninga- og hópferðabílum - Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku. Aðlögun að loftslagsbreytingum - Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna ohf. 12.00 Súpa, spjall og netagerð Hér er hægt að skrá sig.
Skráning hafin á Umhverfisdag atvinnulífsins
Skráning er hafin á Umhverfisdag atvinnulífsins sem verður í Hörpu miðvikudaginn 9. október.

Tengt efni
Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Halda þarf sérstöðu Íslands á lofti við mótun umhverfisregluverks í Evrópu
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði umræðum á Umhverfisdegi atvinnulífsins um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.

Aðgangur stóriðju að endurnýjanlegri orku eitt stærsta framlag Íslands til loftlagsmála
Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá SI, flutti erindi um sérstöðu Íslands og samkeppnishæfni stóriðju á Umhverfisdegi atvinnulífsins.
