Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður starfshóps um fjármögnun samgöngukerfisins og formaður SA, afhenti Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skýrslu hópsins á kynningarfund sem haldinn var í Húsi atvinnulífsins síðastliðinn föstudag. Á vef Stjórnarráðs Íslands segir að í skýrslunni séu kynntir valkostir við fjármögnun og aðferðafræði við forgangsröðun verkefna. Á þeim grunni hafi starfshópurinn sett saman lista yfir níu flýtiframkvæmdir sem uppfylltu kröfu um umferðaröryggi, umferðarþunga og þjóðhagslegum ábata vegna slíkra flýtiframkvæmda. Þar kemur jafnframt fram að leiðarljós í starfi starfshópsins hafi verið að leita leiða til að flýta uppbyggingu brýnna samgöngumannvirkja í þágu umferðaröryggis. Álag á vegi hafi aukist mikið síðustu ár en á sama tíma hafi framlög til vegagerðar verið óvenjulega lág sem hlutfall af landsframleiðslu. Hér er hægt að nálgast skýrsluna sem ber yfirskriftina Vegaframkvæmdir - leiðir til fjármögnunar. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður starfshóps um fjármögnun samgöngukerfisins og formaður SA.
Skýrsla um fjármögnun samgöngukerfisins
Skýrsla starfshóps um fjármögnun samgöngukerfisins hefur verið afhent samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Tengt efni
Heimsókn í ný húsakynni Blikksmiðsins
Fulltrúi SI heimsótti ný húsakynni Blikksmiðsins að Bæjarflöt 2.

Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Halda þarf sérstöðu Íslands á lofti við mótun umhverfisregluverks í Evrópu
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði umræðum á Umhverfisdegi atvinnulífsins um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.
