Stýrivextir Seðlabankans eru of háir og aðhaldsstig peningastefnunnar of mikið um þessar mundir að mati Samtaka iðnaðarins, SI. Verðbólgan hefur hjaðnað nokkuð undanfarið, verðbólguvæntingar lækkað og raunstýrivextir, sem er mælikvarði á aðhald peningastefnunnar hækkað. Á sama tíma hefur dregið úr hagvexti og hagvaxtarhorfur hafa versnað, ekki síst eftir að jarðhræringarnar á Reykjanesskaga hófust. Að mati SI þarf að gæta að því að baráttan við verðbólguna, sem svo sannarlega er mikilvæg, verði með þeim hætti að efnahagslegum og félagslegum kostnaði verði haldið í lágmarki.
Hægt hefur umtalsvert á hagvexti og sjást merki þess víða, m.a. á tölum um neyslu og fjárfestingu. Ljóst er að hátt vaxtastig Seðlabankans er farið að hafa mikil áhrif á heimilin og fyrirtækin í landinu og viðbúið að þau áhrif verði enn meiri og sýnilegri á næstunni. Mikilvægt er að mati SI að Seðlabankinn gæti hófs í aðgerðum sínum og beiti vaxtatækjum sínum af varúð, sérstaklega við þær aðstæður sem nú eru upp í íslensku samfélagi.
Samtök iðnaðarins eru ekki ein um þá skoðun að stýrivextir bankans séu of háir um þessar mundir. Fer þeim fjölgandi sem halda því fram. Má nefna að í könnun meðal aðila á fjármálamarkaði sem birt var fyrr í þessari viku kom fram að um 27% svarenda telja að aðhald peningastefnunnar sé of þétt og stýrivextir bankans of háir en það hlutfall var 15% fyrir ári og 0% fyrir tveim árum.
Peningastefnunefnd Seðlabankans mun koma saman í byrjun næstu viku og taka ákvörðun um stýrivexti bankans. Verður niðurstaða nefndarinnar kynnt miðvikudaginn 22. nóvember. Líkur eru taldar á því að nefndin muni halda stýrivöxtum bankans óbreyttum. Ef af verður er um að ræða annan vaxtaákvörðunarfundinn í röð þar sem nefndin heldur stýrivöxtum bankans óbreyttum eftir hratt vaxtahækkunarferli sem stóð yfir af hálfu bankans frá því um mitt ár 2021 til október í ár en á þeim tíma voru vextir bankans hækkaðir úr 0,75% í 9,25% í fjórtán skrefum.
Áhrif mikilla hækkana stýrivaxta undanfarin misseri eru að koma fram og munu halda áfram að gera það á næstu mánuðum enda tekur nokkurn tíma fyrir vaxtabreytingar að hafa áhrif. Verðbólgan hefur farið úr 10,2% niður í 7,9% síðan í febrúar á þessu ári. Reiknað er með því að dragi talsvert meira úr verðbólgu á næstunni. Samhliða þessu hafa verðbólguvæntingar lækkað. SI telja mikilvægt að aðrir aðilar sem koma að hagstjórninni leggi sitt af mörkum við að ná niður verðbólgunni. Í því sambandi er boltinn nú hjá stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins. Að mati Samtaka iðnaðarins er mikilvægt að kjarasamningar í vetur renni stoðum undir stöðugleika og verðbólgu í takti við markmið Seðlabankans. Boltinn er einnig hjá ríkisstjórninni þar sem mikilvægt er að hún beiti aðhaldi og nýti ríkisfjármálin til að styrkja framboðshlið hagkerfisins og efli framleiðni.




