Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem stuðla að eflingu hringrásarhagkerfis á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 30. apríl næstkomandi. Gert er ráð fyrir að styrkir verði veittir til afmarkaðra verkefna og verða þeir almennt veittir til eins árs í senn. Reynist verktíminn vera lengri er þó heimilt að veita árlegan styrk til allt að þriggja ára með fyrirvara um fjárveitingar á fjárlögum. Heildarstyrkupphæð er 230 milljónir króna. Hver einstakur styrkur mun almennt ekki nema hærri fjárhæð en 10% af heildarfjárheimild ársins. Umsækjendur sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli frá Þjóðskrá og finna þar viðeigandi eyðublað undir umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Á vef Stjórnarráðsins er hægt að nálgast frekari upplýsingar um markmið með styrkveitingunum. Hér er hægt að nálgast reglur um styrkveitingarnar. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Hafstein Pálsson, verkfræðing í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, s. 545-8600, hafsteinn.palsson@uar.is.
Styrkir til að efla íslenskt hringrásarhagkerfi
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til eflingar hringrásarhagkerfis á Íslandi.

Tengt efni
Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Halda þarf sérstöðu Íslands á lofti við mótun umhverfisregluverks í Evrópu
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði umræðum á Umhverfisdegi atvinnulífsins um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.

Aðgangur stóriðju að endurnýjanlegri orku eitt stærsta framlag Íslands til loftlagsmála
Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá SI, flutti erindi um sérstöðu Íslands og samkeppnishæfni stóriðju á Umhverfisdegi atvinnulífsins.
