Beint í efni

Um 80 sýnendur verða á Lifandi heimili í Laug­ar­dals­höll­inni

Sýningin Lifandi heimili 2019 hefst í Laugardalshöllinni næstkomandi föstudag og stendur fram á sunnudag.

Skráning sýnenda á Lifandi heimili stendur yfir

Sýningin Lifandi heimili 2019 hefst í Laugardalshöll næstkomandi föstudag 17. maí og stendur fram til sunnudagsins 19. maí. Um 80 fyrirtæki munu kynna vörur sínar og þjónustu og þar gefst landsmönnum tækifæri til að kynna sér allt það nýjasta á markaðnum. Meðal þeirra sem verða á sýningunni eru Félag íslenskra gullsmiða og Félag íslenskra snyrtifræðinga sem eru aðildarfélög SI.

Félagsmönnum SI er boðið á formlega setningu sýningarinnar kl. 17.00 á föstudaginn og geta þeir virkjað boðsmiða með því að skrá þig hér og nota kóðann BB01.

Um 80 sýnendur verða á Lifandi heimili í Laugardalshöllinni - Samtök Iðnaðarins