„Við höfum lengi óskað eftir því að fá aðgengi að betri gögnum um húsnæðismarkaðinn og því er þetta endurmat jákvætt enda hefur ríkt upplýsingaóreiða um mannfjöldaþróun hér á landi,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í frétt Morgunblaðsins um endurmat Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á uppsafnaðri íbúðaþörf. „Þetta endurmat hefur þó ekki áhrif á þá staðreynd að það er og verður eftir sem áður skortur á íbúðum sem mun magnast vegna samdráttar í nýframkvæmdum. Hækkun byggingarkostnaðar dregur úr framboði og veldur þannig hækkun nafnverðs.“
Í fréttinni segir að eins og Morgunblaðið hafi fjallað um hafi fjármálaráðuneytið gefið út að íbúafjöldinn hafi verið ofmetinn um 14 þúsund manns. Samkvæmt því búi 386 þúsund manns á Íslandi en ekki tæplega 400 þúsund.
Þegar blaðamaður spyr hvort fjölmiðlar hafi dregið upp ýkta mynd í umfjöllun af íbúðaskorti á Íslandi síðustu ár svarar Sigurður: „Nei, ég tel svo ekki vera. Við höfum meira horft fram á veg, hver spáð fólksfjölgun er í framtíð og hvað það muni kalla á margar íbúðir. Mér sýnist í fljótu bragði að þessi endurskoðun breyti ekki stóru myndinni hvað það varðar. Það komu tæplega 3.100 nýjar íbúðir á markaðinn í fyrra og það er enn undirliggjandi þörf á markaði. Samtímis erum við að horfa fram á samdrátt í framkvæmdum og sérstaklega á fyrstu byggingarstigum. Við sjáum skýr merki um það t.d. í talningu HMS á íbúðum í byggingu. Við gerðum nýverið könnun meðal verktaka þar sem við báðum þá að bera saman fjölda íbúða sem þeir hefðu hafið byggingu á síðustu 12 mánuði og fjölda íbúða sem þeir ætluðu að byrja að byggja á næstu 12 mánuðum. Það reyndist vera mikill samdráttur eða 30% sem bætist þá við 65-75% samdrátt frá árinu áður á þennan sama mælikvarða.“
Morgunblaðið, 16. febrúar 2024.




