Í Morgunblaðinu í dag er greint frá því að fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hafi hækkaði um 2 prósent á milli mánaða í október. Verð á fjölbýli hækkaði um 1,8 prósent og verð á sérbýli um 2,2 prósent. Í fréttinni er rætt við Friðrik Á. Ólafsson, forstöðumann byggingarsviðs Samtaka iðnaðarins, sem segir að alla jafna vanti 1.500 til 1.800 íbúðir á ári inn á markaðinn en uppsöfnuð þörf undanfarinna ára sé umtalsverð. „Við teljum að uppsöfnuð þörf á íbúðum sé einhvers staðar í kringum 4.000 og ekki verði farið að saxa á það fyrr en í fyrsta lagi eftir svona eitt og hálft ár.“ Í fréttinni er einnig sagt frá byggingu smáíbúða í Urriðaholti sem eru 25 fermetrar að stærð og segir þar að engum þægindum verði fórnað.
Uppsöfnuð þörf á um 4.000 íbúðum
Uppsöfnuð þörf á um 4.000 íbúðum
Friðrik Á. Ólafsson, forstöðumaður byggingarsviðs SI, segir í Morgunblaðinu í dag uppsafnaða þörf á íbúðum vera um 4.000.

Tengt efni
Heimsókn í ný húsakynni Blikksmiðsins
Fulltrúi SI heimsótti ný húsakynni Blikksmiðsins að Bæjarflöt 2.

Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Halda þarf sérstöðu Íslands á lofti við mótun umhverfisregluverks í Evrópu
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði umræðum á Umhverfisdegi atvinnulífsins um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.
