Vatnsnotkun íslenskra fyrirtækja var um 198 milljónir rúmmetra á síðasta ári eða 71% af heildarvatnsnotkun. Vatnsnotkun alls var um 280 milljónir rúmmetra en var 275 milljónir rúmmetra árið á undan, þar af var 92,8% af neysluvatni fengið úr grunnvatni en 6,8% voru yfirborðsvatn. Hæstu notkunartölur eru hjá fyrirtækjum í fiskeldi og jarðvarmavirkjunum. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Það er Veðurstofa Íslands sem safnar gögnum um vatnsnotkun frá öllum þekktum vatnsveitum og fyrirtækjum með einkaveitur. Heildarúrkoma á landinu á síðasta ári var 174.485 milljónir rúmmetra og segir á vef Hagstofunnar að meðalúrkoma á Íslandi sé ein sú mesta í Evrópu.
Vatnsnotkun íslenskra fyrirtækja 71% af heildarvatnsnotkun
Vatnsnotkun íslenskra fyrirtækja var um 198 milljónir rúmmetra á síðasta ári eða 71% af heildarvatnsnotkun.

Tengt efni
Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Halda þarf sérstöðu Íslands á lofti við mótun umhverfisregluverks í Evrópu
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði umræðum á Umhverfisdegi atvinnulífsins um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.

Aðgangur stóriðju að endurnýjanlegri orku eitt stærsta framlag Íslands til loftlagsmála
Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá SI, flutti erindi um sérstöðu Íslands og samkeppnishæfni stóriðju á Umhverfisdegi atvinnulífsins.
