Beint í efni

Vega­mála­stjóri á fundi Mannvirkis

Forstjóri Vegagerðarinnar var gestur á félagsfundi Mannvirkis – félags verktaka.

Vegamálastjóri á fundi Mannvirkis

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Magnús Valur Jóhannsson, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar, voru gestir á félagsfundi Mannvirkis – félags verktaka í morgun.

Sigþór Sigurðsson, formaður félagsins, kynnti starfsemi félagsins fyrir fulltrúum Vegagerðarinnar. Á fundinum mynduðust umræður um ýmis mál tengd vegagerð, svo sem framkvæmdir og fjármögnun.

Í kjölfarið hófst aðalfundur félagsins en ákveðið var að halda aukaaðalfund á næstu vikum.

Á myndinni hér fyrir ofan má sjá Gylfa Gíslasyni hjá JÁVERK sem er varaformaður Mannvirkis og Sigþór Sigurðsson hjá Hlaðbæ Colas sem er formaður Mannvirkis.

Vegamálastjóri á fundi Mannvirkis - Samtök Iðnaðarins