Ráðstefna um byggingarúrgang sem Fenúr, Grænni byggð og Samtök iðnaðarins stóðu fyrir í síðustu viku var vel sótt. Það voru yfir 100 manns sem hlýddu á fjölbreytt erindi um flokkun, endurnýtingu og endurvinnslu. Meðal fyrirlesara var Eirik Wærner, ráðgjafi hjá Multiconsult í Osló. Hann fór yfir reynslu Norðmanna í þessum efnum.
Á vef Grænni byggðar er hægt að nálgast glærur ráðstefnunnar.













