Beint í efni

Vel sóttur jólafundur Mál­ara­meist­ara­fé­lags­ins

Jólafundur Málarameistarafélagsins fór fram í Húsi atvinnulífsins 15. desember.

Vel sóttur jólafundur Málarameistarafélagsins

Árlegur jólafundur Málarameistarafélagsins sem var haldinn föstudaginn 15. desember var vel sóttur. Að þessu sinni var fundurinn í boði Málningar. Á fundinum fór Elísa Arnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, yfir verkefni ársins en félagið hefur verið ötult við að útbúa samræmdar verklýsingar fyrir félagsmenn og innkaupaaðila til notkunar sem má nálgast hér.

Eftir kynningu var veglegt jólahlaðborð frá Pottinum og pönnunni og létt uppistand frá Bolla Má Bjarnasyni.


Vel sóttur jólafundur Málarameistarafélagsins - Samtök Iðnaðarins