Beint í efni

Yngstur til að ná sveinsprófi í rafvirkjun

Hlynur Gíslason er yngsti próftaki sem náð hefur sveinsprófi í rafvirkjun.

Yngstur til að ná sveinsprófi í rafvirkjun

Hlynur Gíslason náði þeim árangri í febrúar síðastliðnum að vera yngsti próftaki sem náð hefur sveinsprófi í rafvirkjun, aðeins átján ára. Af því tilefni fékk hann viðurkenningu frá Samtökum rafverktaka og Félagi íslenskra rafvirkja í samstarfi við Johan Rönning. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART, Pétur H. Halldórsson, formaður FLR og varaformaður SART, Hlynur Gíslason, sveinn í rafvirkjun, Margrét Arnarsdóttir, formaður FÍR og varaformaður RSÍ, Jón Ólafur Halldórsson formaður sveinsprófsnefndar, og Kristján Þ. Snæbjörnsson, formaður RSÍ.

Í Morgunblaðinu er rætt við Hlyn þar sem hann segir meðal annars þegar hann er spurður hvernig honum þyki að taka á móti slíkri viðurkenningu: „Allt í lagi svona, maður lætur sig hafa það að taka á móti henni.“ Í Morgunblaðinu kemur fram að Hlynur hafi í desember síðastliðnum brautskráðst af rafvirkjabraut og sem stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Þá hlaut hann viðurkenningu fyrir bestan árangur á rafvirkjabraut auk þess sem hann fékk viðurkenningu fyrir árangur sinn í dönsku og spænsku. Hlynur lauk síðan sveinsprófinu í febrúar síðastliðnum, þá á nemasamningi hjá Veitum. Þegar hann er spurður í Morgunblaðinu hvers vegna hann hafi valið rafvirkjanámið segir hann: „Þetta er hagnýtt nám og praktískt sem maður getur notað alls staðar. Það er hagnýt menntun og mjög nýtanleg.“

Morgunblaðið, 9. október 2021.

Yngstur til að ná sveinsprófi í rafvirkjun - Samtök Iðnaðarins