Fréttasafn



22. okt. 2020 Almennar fréttir Félag ráðgjafarverkfræðinga Mannvirki

Planitor með nýjar lausnir í mannvirkjagerð

Fyrsti fundurinn í rafrænni fundaröð á vegum Yngri ráðgjafa, sem er deild innan Félags ráðgjafarverkfræðinga, um nýsköpun og nýjar lausnir í mannvirkjagerð fór fram í morgun þar sem Guðmundur Kristján Jónsson og Jökull Sólberg, stofnendur Planitor, kynntu fyrirtæki sitt. Fundurinn var vel sóttur en rúmlega 30 manns mættu á Zoom. 

Planitor bíður upp á stafrænar lausnir sem ætlað er að leysa ólíkar áskoranir á sviði byggingar- og skipulagsmála. Hugbúnaðarlausnir Planitor stuðla að skilvirkari ferlum, auka yfirsýn, draga fram og birta rauntímaupplýsingar og bjóða upp á stafræna miðlun upplýsinga. Vörur Planitor eru Fundargerðargátt Planitor, Vaktarinn og Skipulag í kynningu.

Guðmundur Kristján Jónsson og Jökull Sólberg, stofnendur Planitor kynntu fyrirtækið sitt.

Fundur-oktober-2020-2-

Fundur-oktober-2020-3-

Næstu fundir í fundaröðinni

Næsti fundur í fundaröðinni verður um Arkio miðvikudagurinn 4. nóvember kl. 15.00-16.00 en þá mun stofnandi Arkio, Hilmar Gunnarsson, kynna hönnunarhugbúnað Arkio sem gerir hönnuðum kleift að hanna byggingar eða borgarskipulag með einföldum hætti með VR og AR tækni. Skráning fer fram hér.

Þriðji fundurinn í fundaröðinni verður um BIM miðvikudaginn 25. nóvember kl. 09.00-10.00 þegar Hjörtur Sigurðsson, framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu, og Ingibjörg Birna Kjartansdóttir, BIM/VDC þróunarstjóri Ístaks, ræða um BIM sem er aðferðafræði við undirbúning, hönnun, byggingu og rekstur mannvirkja þar sem hönnuðir setja upp rafræn, þrívíð og hlutbundin líkön af mannvirkjum. Skráning fer fram hér.