Beint í efni

Félag blikk­smiðju­eig­enda með aðalfund í Borgarnesi

Aðalfundur Félags blikksmiðjueigenda var haldinn í Borgarnesi síðastliðinn föstudag.

Félag blikksmiðjueigenda með aðalfund í Borgarnesi

Góð mæting var á aðalfund Félags blikksmiðjueigenda, FBE, sem haldinn var í Borgarnesi á Hótel B59 síðastliðinn föstudag en þar voru yfir 90% félagsmanna. Stjórnina skipa, talið frá vinstri, Stefán Þ. Lúðvíksson, Hallgrímur Atlason, Bjargmundur Björgvinsson, Sævar Kristjánsson, Sigurrós Erlendsdóttir, Sævar Jónsson, formaður FBE, og Ágúst Páll Sumarliðason. Sigurrós, Sævar og Bjargmundur sem lokið höfðu kjörtímabili sínu voru endurkjörin.

Eftir aðalfundinn snæddu fundargestir og makar á Landnámssetrinu og að því loknu var haldið á Söguloftið þar sem Grettissaga Einars Kárasonar var á dagskrá. Á laugardaginn fór hópurinn í hellinn Víðgelmi og að hellaskoðun lokinni var komið við á veitingastaðnum Krauma við Deildartunguhver þar sem snæddur var hádegisverður. Um kvöldið hélt félagið árshátíð á hótelinu sem lauk á stórdansleik með hljómsveit Geirmundar Valtýssonar.

Félag blikksmiðjueigenda með aðalfund í Borgarnesi - Samtök Iðnaðarins