Beint í efni

Ný stjórn Félags húsgagna- og inn­rétt­inga­fram­leið­enda

Ný stjórn Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda, FHI, var kosin á aðalfundi í gær.

Ný stjórn Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda

Ný stjórn Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda, FHI, var kosin á aðalfundi sem haldinn var í gær í Húsi atvinnulífsins. Formaður félagsins er Guðmundur Ásgeirsson, Á. Guðmundsson, en auk hans eru í stjórn Eyjólfur Eyjólfsson, AXIS, Gústav Jóhannsson, AGUSTAV, Brynjólfur Guðmundsson, GKS og Jóhann Hauksson.

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum hélt Gunnar Sigurðarson, viðskiptastjóri á framleiðslusviði SI, kynningu um verkefnið Íslenskt gjörið svo vel.

Á myndinni hér fyrir ofan eru, talið frá vinstri, Þorleifur Magnússon, varamaður, Brúnás, Eyjólfur Eyjólfsson, AXIS, Guðmundur Ásgeirsson, formaður, Á. Guðmundsson, Brynjólfur Guðmundsson, GKS, Jóhann Hauksson og Tómas Þorbjörnsson, varamaður.

Ný stjórn Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda - Samtök Iðnaðarins