Beint í efni

Ný stjórn Félags hús­gagna­bólstr­ara

Ný stjórn var kosin á aðalfundi Félags húsgagnabólstrara sem fór fram í Húsi atvinnulífsins.

Ný stjórn Félags húsgagnabólstrara

Aðalfundur Félags húsgagnabólstrara var haldinn fimmtudaginn 25. maí í Húsi atvinnulífsins. Á fundinum var ný stjórn félagsins kosin. Í fyrsta skipti í sögu félagsins er stjórn nú einungis skipuð konum. Heiða Harðardóttir tekur við sem formaður félagsins af Ásgrími Þór Ásgrímssyni. Auk Heiðu skipa þær Berglind Hafsteinsdóttir, gjaldkeri, og Þórhalla S. Sigmarsdóttir, ritari, nýja stjórn félagsins.

Félag húgsgagnabólstrara á sér langa sögu en félagið var stofnað árið 1928.

felag-husgagnabolstrara-mai-2023.jpg
Á myndinni eru, talið frá vinstri, Heiða Harðardóttir, Berglind Hafsteinsdóttir og Þórhalla S. Sigmarsdóttir.
Ný stjórn Félags húsgagnabólstrara - Samtök Iðnaðarins