Beint í efni

Nýsköpun á eftir að breyta bygg­ing­ar­iðn­aði hratt

Opin málstofa um nýsköpun í byggingariðnaði var haldin í Grósku sem hluti af Nýsköpunarvikunni.

Nýsköpun á eftir að breyta byggingariðnaði hratt

Samtök iðnaðarins ásamt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Byggingavettvanginum og Verkís, stóðu í morgun fyrir opinni málstofu í samstarfi við Nýsköpunarvikuna sem stendur frá 26. maí til 2. júní. Á málstofunni var vinna við nýtt skipulag á rannsóknar- og nýsköpunarumhverfi byggingariðnaðarins kynnt auk þess sem fulltrúar úr langri virðiskeðju mannvirkjagerðar héldu örerindi um nýsköpun innan byggingariðnaðarins. Málstofan bar yfirskriftina Nýsköpun í mannvirkjagerð – framkvæmdir til framtíðar og fór fram í Grósku við Vatnsmýri auk þess sem var boðið upp á beint streymi.

Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, var fundarstjóri. Hún sagði frá því í opnunarorðum að næstu ár verða tími breytinga. Fram undan sé endurreisn hagkerfisins eftir heimsfaraldur og á sama tíma sé mikill þrýstingur á atvinnulífið um aðgerðir í umhverfismálum, ekki síst þegar kemur að byggingariðnaði. Jóhanna Klara nefndi að hingað til hafi byggingariðnaðurinn verið álitinn ansi íhaldssamur iðnaður sem hafi ekki endilega verið tengdur við mikla nýsköpun. Tækniframfarir og nýsköpun eigi þó eftir að breyta iðnaðinum hratt og sífellt meiri áhersla verði lögð á frjóa hugsun, tækni og sjálfvirkni. Hún sagði að á næstu árum munum við sjá ný fyrirtæki verða til á þessu sviði. Starfsemi þeirra muni m.a. fela í sér þróun á tæknilausnum fyrir undirbúning framkvæmda, hönnun, uppbyggingu, rekstur, leigu og umbreytingu fasteigna. Krafan um sjálfbærni með áherslu á kolefnisfótspor, auðlindanotkun, aukin gæði og orku muni einnig ýta undir nauðsynlega nýsköpun.

Hér er hægt að horfa á upptöku af viðburðinum: https://www.facebook.com/events/312437883711747

Nýsköpun á eftir að breyta byggingariðnaði hratt - Samtök Iðnaðarins