Beint í efni

SI og SÍK fagna fram­leng­ingu á end­ur­greiðsl­um til 2025

SI og SÍK fagna því að framlengja eigi lög um endurgreiðslur til kvikmyndagerðar fram til ársins 2025.

Tíu aðgerðir stjórnvalda til viðbótar vegna COVID-19

Samtök iðnaðarins og Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SÍK, fagna því að framlengja eigi lög um endurgreiðslur til kvikmyndagerðar fram til ársins 2025 líkt og fram kemur í umsögn þeirra um 604. mál.

Í umsögninni kemur fram að endurgreiðslur til kvikmyndagerðar hafi margsannað gildi sitt og skipti sköpum fyrir samkeppnishæfni íslenskrar kvikmyndagerðar. Þá segir í umsögninni að samtökin vilji jafnframt koma á framfæri ánægju með að í skoðun sé að hækka endurgreiðsluhlutfallið með það að markmiði að laða stærri kvikmyndaframleiðsluverkefni til landsins og hafi SÍK skipað tvo fulltrúa í starfshóp á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem hafi þau mál til skoðunar.

Hér er hægt að nálgast umsögnina í heild sinni.

SI og SÍK fagna framlengingu á endurgreiðslum til 2025 - Samtök Iðnaðarins