Beint í efni

Stjórn SI á ferð um Reykjanes

Stjórn SI var á ferð um Reykjanes og heimsótti aðildarfyrirtæki.

Stjórn SI á ferð um Reykjanes

Stjórn Samtaka iðnaðarins heimsótti Reykjanes dagana 22. og 23. maí og heimsótti nokkur af aðildarfyrirtækjum samtakanna.

Fyrirtækin sem stjórn SI heimsótti eru Algalíf Iceland, Skipasmíðastöð Njarðvíkur, Skólamatur, Georg V. Hannah skartgripaverslun og Auðlindagarður HS Orku.

Í tilefni af ferð stjórnarinnar um Reykjanes var efnt til fjölmenns hádegisverðarfundar á Courtyard Marriott í Reykjanesbæ þar sem rætt var um öflugt atvinnulíf á Reykjanesi.

Á myndinni hér fyrir ofan eru, talið frá vinstri, Arna Arnardóttir, Halldór Halldórsson, Magnús Hilmar Helgason, Sigurður Hannesson, Þorsteinn Víglundsson, Jónína Guðmundsdóttir, Vignir Steinþór Halldórsson, Hjörtur Sigurðsson, Árni Sigurjónsson, Guðrún Halla Finnsdóttir og Karl Andreasson. Myndina tók BIG.

Stjórn SI á ferð um Reykjanes - Samtök Iðnaðarins