Beint í efni

Útgáfu tímarits SI fagnað í Grósku

Nýtt tímarit SI um nýsköpun var afhent forseta Íslands og nýsköpunarráðherra í Grósku í Vatnsmýrinni.

Útgáfu tímarits SI fagnað í Grósku

Í tilefni af útgáfu nýs tímarits Samtaka iðnaðarins um nýsköpun var efnt til útgáfuhófs í hugmynda- og nýsköpunarhúsinu Grósku í Vatnsmýrinni þar sem forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, tóku á móti fyrstu eintökum tímaritsins. Með útgáfunni vilja samtökin leggja sitt af mörkum til að hvetja til nýsköpunar á öllum sviðum atvinnulífsins en í tímaritinu er horft á nýsköpun út frá fjölmörgum sjónarhornum. Á myndinni hér fyrir ofan eru Þórður Magnússon hjá Eyri, Árni Sigurjónsson, formaður SI, og Ágústa Guðmundsdóttir hjá Zymetech.

Hér er hægt að nálgast vefútgáfu tímaritsins.

Á Facebook SI er hægt að skoða fleiri myndir frá viðburðinum.

Á mbl.is er hægt að skoða myndir frá viðburðinum, 22. júní 2020.

Myndirnar tók Birgir Ísleifur Gunnarsson.

Margrét Kristín Sigurðardóttir, ritstjóri tímaritsins, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Kristinn Aspelund hjá Ankeri og Örn Viðar Skúlason hjá NSA.

Egill Jónsson hjá Össuri, Vignir Steinþór Halldórsson hjá MótX og Valgerður Hrund Skúladóttir hjá Sensa.

Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV, í miðju.


Útgáfu tímarits SI fagnað í Grósku - Samtök Iðnaðarins