Fréttasafn



15. ágú. 2023 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Tilnefningar fyrir Vaxtarsprotann

Frestur til að skila inn tilnefningum fyrir Vaxtarsprotann 2023 hefur verið framlengdur til 18. ágúst. Meginviðmið er vöxtur í söluveltu sprotafyrirtækis milli síðasta árs og ársins á undan. Skilyrði er að frumkvöðull sé til staðar í fyrirtækinu og fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi, fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar. Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Fyrirtækið fær til varðveislu farandgrip með áletrun og sérstakan verðlaunaskjöld til eignar. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til þeirra tveggja sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 millj. kr. og hins vegar sem velta á bilinu 100-1.000 millj. kr. Veitt er sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna. Því er einnig leitað eftir ábendingum um sprotafyrirtæki sem hafa náð því marki.

Á þessari vefslóð er hægt að senda tilnefningu rafrænt: 

https://www.si.is/vaxtarsprotinn

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Vaxtarsprotann 2022.

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Vaxtarsprotann 2021.

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Vaxtarsprotann 2020.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Aðstandendur verkefnisins skipa dómnefnd sem sér um val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins.

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann: Controlant (2022), 1939 Games (2021), Kerecis (2020), Carbon Recycling International (2019), Kaptio (2018), Kerecis (2017), Eimverk (2016), Kvikna (2015), DataMarket (2014), Meniga (2013), Valka (2012), Handpoint (2011), Nox Medical (2010), Mentor (2009), Mentor (2008) og Marorka (2007).

Myndin er tekin þegar Controlant hlaut Vaxtarsprotann á síðasta ári.