Fréttasafn



27. ágú. 2020 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun Samtök sprotafyrirtækja

Vaxtarsproti ársins er Kerecis sem jók veltu um 142%

Fyrirtækið Kerecis hefur verið valið Vaxtarsproti ársins sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, afhenti Vaxtarsprotann í morgun í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal.

Kerecis hóf starfsemi árið 2013 en fyrirtækið framleiðir afurðir byggðar á affrumuðu þorskroði, sem hafa jákvæð áhrif á frumuvöxt og eru notaðar til meðhöndlunar á þrálátum sárum og brunasárum, einkum hjá fólki með sykursýki. Fyrirtækið er einnig með starfsemi í Bandaríkjunum. Rekstrartekjur fyrirtækisins jukust um 142% á milli áranna 2018 og 2019, en þær fóru úr rúmum 500 milljónum króna í yfir 1,2 milljarð króna. Kerecis hlaut jafnframt sérstaka viðurkenningu fyrir að hafa í fyrsta sinn náð veltu yfir 1 milljarði króna á árinu 2019. Þetta er í annað sinn sem Kerecis hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins en árið 2017 hlaut fyrirtækið einnig Vaxtarsprotann.

Tvö önnur fyrirtæki, Carbon Recycling International og Pure North Recycling, hlutu einnig viðurkenningar fyrir mikinn vöxt í veltu á milli ára. Carbon Recycling International rekur verksmiðju í Svartsengi sem framleiðir metanól úr koltvísýringi og vetni og þróar tæknilausn til að framleiða vistvænt eldsneyti. Velta fyrirtækisins jókst um 78% á milli ára. Pure North Recycling endurvinnur plast með umhverfisvænum orkugjöfum og er jarðvarmi í aðalhlutverki. Velta fyrirtækisins jókst um 59% milli ára.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Þetta er í 14. skiptið sem viðurkenningarnar eru veittar en tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Í dómnefnd voru Ari Kristinn Jónsson fyrir Háskólann í Reykjavík, Lýður Skúli Erlendsson fyrir Rannís og Sigríður Mogensen fyrir Samtök iðnaðarins og Samtök sprotafyrirtækja.

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann:

- 2007 Marorka

- 2008 Mentor

- 2009 Mentor

- 2010 Nox Medical

- 2011 Handpoint

- 2012 Valka

- 2013 Meniga

- 2014 DataMarket

- 2015 Kvikna

- 2016 Eimverk

- 2017 Kerecis

- 2018 Kaptio

- 2019 Carbon Recycling International

- 2020 Kerecis

Eftirfarandi fyrirtæki hafa fengið viðurkenningu fyrir góðan vöxt:

- 2007 Gagarín, Stiki, Stjörnu-Oddi

- 2008 Betware, Valka, Kine

- 2009 Naust Marine, Gogogic, Saga Medica

- 2010 Valka, Hafmynd, Menn og Mýs

- 2011 Marorka, Trackwell, Gogogic

- 2012 Kvikna, ORF Líftækni, Thorice

- 2013 Controlant, Nox Medical, Lceconsult

- 2014 Valka, Nox Medical, Skema

- 2015 Kvikna, Valka

- 2016 Lauf Forks, Orf Líftækni, Valka

- 2017 TeqHire, Valka, Kvikna

- 2018 Kerecis, Gangverk, Orf-Líftækni

- 2019 Taktikal, Kerecis

- 2020 Carbon Recycling International, Pure North Recycling

 

Myndir/Birgir Ísleifur

Á Facebook er hægt að skoða fleiri myndir frá viðburðinum.

Si_vaxtarsprotinn_2020_hopmynd_prent-1Frá afhendingu viðurkenninganna, talið frá vinstri, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Lýður Erlendsson hjá Rannís, Ingólfur Guðmundsson, forstjóri CRI, Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, Sigurður Halldórsson, framkvæmdastjóri Pure North Recycling, Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV, og Ari Kristinn Jónsson, rektor HR.

Si_vaxtarsprotinn_2020_hopmynd_prent-2Frá afhendingu viðurkenninganna, talið frá vinstri, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, Ingólfur Guðmundsson, forstjóri CRI, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, Sigurður Halldórsson, framkvæmdastjóri Pure North Recycling, og Árni Sigurjónsson, formaður SI.


Viðskiptablaðið, 27. ágúst 2020

mbl.is, 27. ágúst 2020.

BB, 28. ágúst 2020.

Bylgjan, 28. ágúst 2020.

Fréttablaðið , 29. ágúst 2020.

MYNDIR

Fleiri myndir á Facebook.

Si_vaxtarsprotinn_2020_a-5_1598625794195Árni Sigurjónsson, formaður SI.

Si_vaxtarsprotinn_2020_a-9Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra.

Si_vaxtarsprotinn_2020_a-3Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI.

Si_vaxtarsprotinn_2020_a-20Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis.

Si_vaxtarsprotinn_2020_a-25Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, og Sigurður Halldórsson, framkvæmdastjóri Pure North Recycling.

Si_vaxtarsprotinn_2020_a-26Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, og Ingólfur Guðmundsson, forstjóri CRI.

Si_vaxtarsprotinn_2020_a-27Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, og Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis. 

Si_vaxtarsprotinn_2020_a-1Viðurkenningarnar.

Si_vaxtarsprotinn_2020_a-2Svanur Vilbergsson, gítarleikari.