Aðild að SI
Fyrirtæki og sjálfstæðir atvinnurekendur sem starfa í iðnaði, hugverki, mannvirkjagerð eða skyldum greinum geta orðið aðilar að Samtökum iðnaðarins og viðeigandi aðildarfélagi þar sem það á við. Aðild að Samtökum iðnaðarins getur því orðið með tvennum hætti, með beinni aðild eða aðild gegnum aðildarfélag.
Hér er hægt að sækja um aðild að Samtökum iðnaðarins rafrænt.
Fyrirspurnir um aðildarumsókn er hægt að senda á mottaka@si.is.
Aðild að Samtökum iðnaðarins geta verið með tvenns konar hætti:
1. Bein aðild
Fyrirtæki sem ekki falla undir einstök aðildarfélög innan Samtaka iðnaðarins sækja um sem beinir aðilar að samtökunum. Ef meirihluti stjórnar samþykkir inntökubeiðnina tekur aðild þá þegar gildi.
2. Aðild gegnum aðildarfélög
Fjölmörg aðildarfélög (iðngreina- og meistarafélög) eiga aðild að Samtökum iðnaðarins og þar með eiga félagsmenn þeirra aðild. Fyrirtæki sem heyra undir einstök aðildarfélög sækja um aðild að viðkomandi félagi og verða með þeim hætti aðilar að Samtökum iðnaðarins í samræmi við lög viðkomandi félags.
Auk félagsgjalda til Samtaka iðnaðarins og Samtaka atvinnulífsins greiða þessi fyrirtæki sérstakt félagsgjald til viðkomandi aðildarfélags.
- Hér er hægt að nálgast forsendur félagsgjalda SI og SA.
- Hér er hægt að reikna út áætlað félagsgjald SI og SA.
Sterkari saman - Ávinningur aðildar að SI
Hér er hægt að nálgast PDF-útgáfu af kynningarbæklingi:
Sterkari saman - Ávinningur aðildar að SI