Félag íslenskra snyrtifræðinga

Félag íslenskra snyrtifræðinga er fagfélag sem flestar snyrtistofur landsins eru aðilar að. Markmið félagsins er að viðhalda menntun snyrtifræðinga og faglegu starfi landsmönnum til góða.

Snyrtifræði er löggild iðngrein. Menntun snyrtifræðinga tryggir neytendum faglega ráðgjöf og sérhæfða meðhöndlun andlits og líkama með heilbrigði og vellíðan í huga fyrir konur og karla.

Snyrtifræðingar snyrta meðal annars hendur og fætur og þeir lita, plokka og farða einstaklinga fyrir öll tækifæri. Að auki bjóða þeir upp á fjölda sérhæfðra meðferða og veita ráðgjöf um notkun á snyrtivörum.

Snyrtifræðingar meðhöndla ýmis húðvandamál ásamt því að viðhalda eðlilegri starfsemi heilbrigðrar húðar. Eftir nákvæma greiningu húðar sérsníða þeir meðferð að þörfum hvers og eins.

Félag íslenskra snyrtifræðinga er fagfélag sem flestar snyrtistofur landsins eru aðilar að. Markmið félagsins er að viðhalda menntun snyrtifræðinga og faglegu starfi landsmönnum til góða.

Vefsíða félagsins: fisf.is

Tengiliður hjá SI: Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, erla@si.is.

Stjórn

Stjórn kosin á aðalfundi 2024

  • Rebekka Einarsdóttir, formaður
  • Brynhildur Íris Bragadóttir
  • María Stefánsdóttir
  • Svana Björk Hjartardóttir
  • Agnes Ósk Guðjónsdóttir
  • Erna María Eiríksdóttir 
  • Guðlaug Stella Hafsteinsdóttir.

Fyrri stjórnir

Stjórn kosin á aðalfundi 2022

  • Rebekka Ýr Einarsdóttir, formaður
  • Beata Emilia Kocot, varamaður
  • Alda Ósk Harðardóttir, meðstjórnandi
  • Birna Ósk Þórisdóttir, meðstjórnandi
  • Brynhildur Íris Bragadóttir, varaformaður
  • María Stefánsdóttir, varamaður
  • Svana Björk Hjartardóttir, varamaður

Stjórn kosin á aðalfundi 2021

  • Birna Ósk Þórisdóttir, formaður
  • Rebekka Ýr Einarsdóttir, varaformaður
  • Brynhildur Íris Bragadóttir
  • Auður Guðmundsdóttir
  • Guðrún Diljá Baldvinsdóttir
  • Oddbjörg Kristjánsdóttir
  • Alda Ósk Harðardóttir
  • Erna María Eiríksdóttir

Stjórn kosin á aðalfundi 2020

  • Birna Ósk Þórisdóttir, formaður
  • Agnes Ósk Guðjónsdóttir
  • Erna María Eiríksdóttir
  • Guðrún Diljá Baldvinsdóttir
  • Helga Högnadóttir
  • Oddbjörg Kristjánsdóttir
  • Rebekka Einarsdóttir
  • Brynhildur Íris Bragadóttir