Iðnaðar- og hugverkasvið SI

SI-Icon-hugverk-hugverkUndir iðnaðar- og hugverkasvið SI heyra fyrirtæki í fjölbreyttum greinum iðnaðar, meðal annars í framleiðslu-, matvæla-, þjónustu-, hátækni- og hugverkaiðnaði; Samtök mjólkur- og kjötvinnslufyrirtækja, Meistarafélag bólstrara, Samtök fyrirtækja í grænni tækni, Samál, Landssamband bakarameistara, Málmur, Samtök skipaiðnaðarins, framleiðslufyrirtæki, matvælafyrirtæki, prentiðnaður, úrgangur og endurvinnsla, Félag hársnyrtimeistara á Norðurlandi, Félag íslenskra gullsmiða, Félag íslenskra snyrtifræðinga, Klæðskera og kjólameistarafélagið, Ljósmyndarafélag Íslands, Tannsmiðafélag Íslands, Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, Samtök gagnavera, Samtök leikjaframleiðenda, Samtök sprotafyrirtækja, Samtök upplýsingatæknifyrirtækja, Samtök fyrirtækja í líf- og heilbrigðistækni. Framleiðsluráð SI og Hugverkaráð SI starfa innan sviðsins.

Framleiðsluráð S

Í Framleiðsluráði SI sitja átta fulltrúar úr ólíkum greinum framleiðsluiðnaðar og leggur ráðið línur fyrir starfsemi framleiðslusviðs SI.

Hugverkaráð SI

Í Hugverkaráði SI sitja sex fulltrúar ásamt sex varafulltrúum og er markmið ráðsins að efla samkeppnishæfni hugverka- og hátæknifyrirtækja á Íslandi. Hugverkaráð SI var upphaflega sett á laggirnar þann 4. mars 2016. Hlutverk ráðsins felst aðallega í því að styrkja þau málefni sem eru sameiginleg fyrirtækjum sem starfa á alþjóðamörkuðum og byggja afurðir sínar og þjónustu á tækni og hugverki. Starfsreglur Hugverkaráðs SI

Matvælaráð SI

Matvælaráð SI var stofnað í júní 2021. Í ráðinu sitja 7 fulltrúar. Matvælaráð SI er vettvangur umræðu um stöðu matvælaiðnaðar á Íslandi, greininga og margvíslegrar stefnumótunar ólíkra matvæla- og drykkjarframleiðenda innan Samtaka iðnaðarins.

Sviðsstjóri er Sigríður Mogensen, sími 8246110, sigridur@si.is.

Fundaröð um framleiðni 2015 og 2016


Prýði

Prýði

Prýði – verk í höndum meistara er samstarfsvettvangur sex fagfélaga innan Samtaka iðnaðarins. Starfsgreinahópurinn fundar reglulega, með það að leiðarljósi að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum hópsins. 

Tengiliður hjá SI er: Jóhanna Vigdís Arnardóttir, hansa@si.is  


Tengdar fréttir

31.5.2023 : Nú er þörf fyrir öðruvísi sérfræðinga en áður

Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, skrifar um háskólanám í grein á Vísi.

Lesa meira

31.5.2023 : Ræddu mistök sem geta orðið í nýsköpunarferlinu

Rætt var um mistök sem geta orðið í nýsköpunarferlinu á fundi Hugverkastofunnar, Controlant og SI í Nýsköpunarvikunni.

Lesa meira

31.5.2023 : Ræddu um framtíðarmatvæli á Íslandi

SI og Íslandsstofa stóðu fyrir málstofu um framtíðarmatvæli á Íslandi í Nýsköpunarvikunni.

Lesa meira

31.5.2023 : Rætt um nýsköpun, sjálfbærni og loftslagsmál á ársfundi Samáls

Ársfundur Samáls fór fram 25. maí sl. í Norðurljósum Hörpu.

Lesa meira

Fréttasafn