SAFL hvetja til málefnalegrar framsetningar á matvælaverði
Samtök fyrirtækja í landbúnaði, SAFL, birta heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag þar sem vakin er athygli á mikilvægi þess að upplýsingar um verðlag á matvöru byggi á traustum gögnum, skýrum forsendum og vandaðri greiningu svo hún stuðli að upplýstri umræðu fremur en upplýsingaóreiðu. Samtökin tiltaka í auglýsingunni að þau voni að upplýsingarnar komi umræðu um verðlag í samhengi og hvetja til málefnalegrar framsetningar í opinberri umræðu.
Í auglýsingunni kemur meðal annars fram að þegar matvælaverð á Íslandi sé borið saman við almennt verðlag í landinu komi í ljós að matvæli séu hlutfallslega á svipuðu róli og í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð. Matvælaverð sé því ekki óvenju dýrt miðað við aðrar vörur og þjónustu á Íslandi. Hátt matvælaverð á Íslandi endurspegli fyrst og fremst að verðlag í landinu er almennt hátt.
Þá kemur fram að hvergi í samanburðarlöndunum hafi matvælaverð hækkað jafn lítið í hlutfallli við laun frá 2020. Matvara hafi raunar lækkað um 5% í hlutfalli við laun en alls staðar annars staðar hækkað, nema á Írlandi. Laun hafi hækkað hraðar en matvælaverð á Íslandi frá 2020 sem þýði að kaupmáttur gagnvart matvælum hafi styrkst og að matvæli taki minni hluta af launum Íslendinga í dag en árið 2020 þegar hið gagnstæða hafi gerst víða í Evrópu.


