Fréttasafn: nóvember 2010
Fyrirsagnalisti
Meiri hækkun á dreifingu raforku en raforkuverði
Dreifing raforku hefur hækkað meira í verði en raforka frá árinu 2005, þegar samkeppni í orkusölu komst á. Þetta kemur fram í athugun sem Efla verkfræðistofa hefur gert fyrir Samtök iðnaðarins.
Hollur matur í skólum er fjárfesting til framtíðar
Samtök iðnaðarins stóðu fyrir málþingi um kröfur til skólamáltíða síðastliðinn þriðjudag. Metaðsókn var að málþinginu, um 150 manns, einkum skólastjórnendur, stjórnendur mötuneyta, matvælaframleiðendur, foreldrar og fulltrúar sveitarfélaga.
Allir vinna - Endurgreiðsla VSK af vinnu á byggingastað framlengd til ársloka 2011
Í dag mælir fjármálaráðherra fyrir frumvarpi sem heimilar ársframlengingu á endurgreiðslu VSK af vinnu á byggingastað. Samtök iðnaðarins hafa hvatt ráðuneytið til framlengja heimildinni sem skilað hefur auknum umsvifum á byggingamarkaði.
Samhljómur á fundi um tækifærin í fjárlagafrumvarpinu
Kröfur til skólamáltíða
Samtök álframleiðenda á Íslandi taka til starfa
Samtök álfyrirtækja á Íslandi tóku formlega til starfa í dag en markmið samtakanna er að vinna að hagsmunum og framþróun íslensks áliðnaðar og að auka upplýsingagjöf um áliðnaðinn.
Meistarafélag húsasmiða gengur til liðs við IÐUNA
Nýsköpun alls staðar – tækifærin í fjárlagafrumvarpinu 2011
Vikuna 15.-21. nóvember er Alþjóðleg athafnavika sem Innovit stendur fyrir. Þann 19. nóvember nk. hafa SI í tengslum við Ár nýsköpunar sett upp skemmtilega dagskrá þar sem ætlunin er að rýna í fjárlagafrumvarpið 2011 með augum nýsköpunar.
Hagræðing í orkunotkun bygginga
Á ráðstefnu um orkunýtni í byggingum kom fram að ná má mikilli hagræðingu með því að skoða orkunotkun bygginga, minnka sóun á orku og stýra notkun. Hér á landi hefur ekki farið mikið fyrir umræðu um orkunýtni og orkusparnað. Þessi málaflokkur hefur hins vegar verið ofarlega á baugi erlendis.
Viðskiptatækifæri fyrir umhverfistæknifyrirtæki
Þann 9. nóvember var haldinn vel sóttur morgunverðarfundur á vegum Íslandsstofu og Clean Tech Iceland (CTI) - samtök íslenskra umhverfistæknifyrirtækja. Farið var yfir hlutverk samtakanna, þjónusta nýstofnaðrar Íslandsstofu kynnt sem og nýtt útflutningsmarkaðsverkefni fyrir umhverfistækni sem hefst í lok mánaðarins.
Tilkynna þarf flokkun og merkingu hættulegra efna
Nú styttist í að ný reglugerð um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna taki gildi. Gerð verður grundvallarbreyting á merkingunum sjálfum en einnig verður breyting á ábyrgð með flokkun efna á markaði. Ábyrgðin færist frá yfirvöldum til atvinnulífsins.
Leggja áherslu á að farið sé eftir lögum
Eins og kunnugt er féllu tveir dómar í Héraðsdómi Reykjaness 20. október sl. þar sem eigendur tveggja fyrirtækja voru dæmdir til greiðslu sekta vegna brota á iðnaðarlögum. Að gefnu tilefni vilja Samtök iðnaðarins koma eftirfarandi á framfæri.
Alþjóðleg athafnavika 2010
Alþjóðleg athafnavika 2010 hefst 15. nóvember á Íslandi og um allan heim, en um er að ræða hvatningarátak til nýsköpunar. Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI er einn af talsmönnum vikunnar.
Betri byggð - Frá óvissu til árangurs
Frumtak fjárfestir í Mentor
Frumtak hefur fest kaup á hlut í Mentor ehf. Mentor var stofnað árið 1990 og hefur frá upphafi unnið með grunnskólum og er því komið með 20 ára reynslu af þróun og rekstri upplýsingakerfa. Mentor sameinaðist sænska fyrirtækinu P.O.D.B árið 2007 en erlendis er fyrirtækið rekið undir nafninu InfoMentor.
Viðskiptatækifæri fyrir umhverfistæknifyrirtæki
Íslandsstofa og Clean Tech Iceland (CTI) og hafa ákveðið að fara í samstarf með verkefni
sem miðar að því að undirbúa og aðstoða umhverfistæknifyrirtæki við að markaðssetja
tilbúna vöru á markaði erlendis. Af því tilefni verður haldinn morgunverðarfundur
þriðjudaginn 9. nóvember kl. 8:30–10:00 að Borgartúni 35, 6. hæð.
Milljarðafjárfesting og 70 störf til frambúðar í nýrri kersmiðju
Fyrsta skóflustungan að nýrri kersmiðju Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð var tekin í dag, en stefnt er að því að hún verði tilbúin í ársbyrjun 2012. Heildarfjárfesting vegna kersmiðjunnar er áætluð um 3,5 milljarðar króna.
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2010
Upphafi Árs nýsköpunar fagnað
Samtök iðnaðarins ýttu úr vör átaksverkefninu Ár nýsköpunar – frumkvæði, fjárfesting, farsæld með stórum fundi sem haldinn var í Marel sl. föstudag. Ríflega 300 manns úr atvinnulífi, stjórnsýslu og stoðumhverfi nýsköpunar komu og fögnuðu saman upphafi átaksins.