Fréttasafn: apríl 2011
Fyrirsagnalisti
Aukin verðbólga ofan í efnahagsslaka áhyggjuefni
Rannsóknir í erfðatækni ræddar á fjölmennum fundi
Tæplega 100 manns sóttu málstofu Samtaka íslenskra líftæknifyrirtækja og Samtaka iðnaðarins um erfðatækni, notagildi og möguleika til atvinnusköpunar á Grand Hótel Reykjavík í morgun. Fjallað var um sögu erfðatækninnar, kosti og takmarkanir og hugtök skilgreind sem nota má til faglegrar og upplýstrar umræðu.
Full samstaða um ATVINNULEIÐINA í stjórn SA
Samtök atvinnulífsins telja að besti kosturinn fyrir þjóðina sé að atvinnuleiðin verði farin út úr kreppunni og að sátt skapist um að atvinnulífið verði tekið úr handbremsu. Mikilvægur þáttur í atvinnuleiðinni er gerð kjarasamninga til þriggja ára sem SA vinna enn að því að gera. Samningaviðræðum hefur ekki verið slitið og hafa aðilar rætt saman þótt tímabundið hlé hafi verið gert á formlegum fundum fyrir páska.
Ótækt að vextir lækki ekki
Seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 4,25% þrátt fyrir að áætlanir um hagvöxt í fyrra og á þessu ári hafi verið lækkaðar. Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur SI, segir ljóst að Seðlabankinn meti stöðu efnahagslífsins verri en áður og frá þeim sjónarhóli sé ótækt að vextir lækki ekki.
Fjármögnunarleigusamningar eru ólögleg erlend lán samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag dóm um að fjármögnunarleigusamningar eru ólögleg erlend lán. Dómurinn er í samræmi við hæstaréttardóm um kaupleigusamninga sem féll í fyrrasumar. Gera má ráð fyrir að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar og mun niðurstaða Hæstaréttar sennilega liggja fyrir í byrjun sumars.
Rannsóknir og atvinnusköpun í erfðatækni
Samtök íslenskra líftæknifyrirtækja og Samtök iðnaðarins efna til málstofu um erfðatækni, notagildi og möguleika til atvinnusköpunar á Grand Hótel Reykjavík, 27. apríl kl. 9.00 – 12.00.
Vonast til að kjaraviðræður hefjist á ný eftir páska
Mikill uppgangur í líftækniiðnaði
Vel á annað hundrað manns sóttu fund um líftækniiðnaðinn í húsakynnum Matís í morgun þar sem komu fram mikilvægar upplýsingar um allt sem tengist þessum arðbæra en þó ögrandi iðnaði.
Hönnun í útflutning – umsóknarfrestur til 27. apríl
Samtök iðnaðarins minna á verkefnið Hönnun í útflutning en umsóknarfrestur rennur út 27. apríl nk. Markmiðið er að hvetja til samstarfs fyrirtækja og hönnuða, skapa ný tækifæri í útflutningi jafnframt því að hvetja fyrirtæki til að hefja útflutning.
Alcoa Fjarðaál veitir 38 milljónum króna til samfélagsverkefna
Alcoa Fjarðaál veitti í gær 26 styrki til samfélagsverkefna á Austurlandi að upphæð samtals 38 milljónir króna. Afhendingin fór fram í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði.
Hagstofa Íslands leiðréttir vísitölu byggingakostnaðar
Vísitala byggingakostnaðar verður leiðrétt 20. apríl vegna alvarlegrar villu í útreikningum Hagstofunnar á vísitölunni. Samtök iðnaðarins bentu Hagstofunni á ósamræmi milli þróunar vinnuliðs vísitölunnar og almennrar þróunar á markaði. Í kjölfarið endurskoðaði Hagstofan útreikningana.
Þversagnir einkenna
Forseti Íslands gagnrýndi samtök atvinnulífs á blaðamannafundi fyrir að tala niður íslenskt atvinnulíf. Helgi Magnússon, formaður SI svaraði þeirri gagnrýni í grein í Fréttablaðinu í dag og Samtök atvinnulífsins sendu frá sér yfirlýsingu í gær.
Tilnefningar til Vaxtarsprota ársins
Samtök iðnaðarins auglýsa eftir tilnefningum til Vaxtarsprota ársins. Frestur til að skila tilnefningum til forvals er til þriðjudagsins 19. apríl n.k. Þau fyrirtæki sem komast í gegnum forvalið þurfa síðan að skila staðfestingum endurskoðanda um þau atriði sem fram koma í viðmiðum dómnefndar fyrir 28. apríl n.k.
RóRó sigrar Gulleggið 2011
Sprotafyrirtækið RóRó sigraði í frumkvöðlakeppni Innovit um Gulleggið 2011. RóRó er viðskiptahugmynd Eyrúnar Eggertsdóttur sem hefur fundið upp tæki sem hjálpar ungbörnum að sofa betur, líða betur og eykur öryggi þeirra. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti sigurlaunin við fjölmenna athöfn á Háskólatorgi.
Formannaskipti í Icelandic Gaming Industry (IGI)
Nýr stjórnarformaður hefur tekið við störfum í Icelandic Gaming Industry (IGI), en Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir tók við af Erlu Bjarneyju Árnadóttur. Erla Bjarney hefur sinnt formannsstörfum frá stofnun samtakanna en Sigurlína setið í stjórn frá árinu 2010.
Norðlenskt atvinnulíf kallar á atvinnu- og nýsköpun
Nokkrir atvinnurekendur á Norðurlandi hafa tekið sig saman og sett af stað verkefni um vinnuhelgi almennings sem snýr að atvinnu-og nýsköpun í landinu. Til liðs við frumherjana gengu Háskólinn á Akureyri og Tækifæri hf og mun því fyrsta Nýsköpunarhelgin líta dagsins ljós þann 15.-17. apríl nk. í Háskólanum á Akureyri.
Erfið en afdrifarík ákvörðun
Þjóðaratkvæðagreiðsla um nýtt Icesave samkomulag fer fram á laugardaginn. Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur SI, segir að niðurstöður hennar geti haft veruleg áhrif á starfsumhverfi iðnaðarins.
Aðalfundur SA - Atvinnuleiðin út úr kreppunni
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram á Hilton Reykjavík Nordica - 7. apríl 2011, kl. 14.00 - 16.00. Að fundi loknum fer fram móttaka.
Tveir áhugaverðir fundir í dag
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga stendur fyrir hádegisverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 5. apríl kl. 12:00-13:30. Leitast verður við að svara þeirri spurningu hvers vegna stór fyrirtæki íhuga að flýja land.Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Félag atvinnurekenda og Samtök iðnaðarins efna til opins fundar um Icesave þjóðaratkvæðagreiðsluna og áhrif niðurstaðna hennar á efnahagsþróun. Fundurinn hefst kl. 16:00 og lýkur um 17:30.
Ný skýrsla um skólamáltíðir
Út er komin skýrsla um skólamáltíðir á Norðurlöndum á vegum Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar, NICe. Skýrslan er afrakstur verkefnis sem unnið var í samstarfi allra Norðurlandanna og var stýrt af Samtökum iðnaðarins. Að verkefninu stóðu svokallaðir þróunarvettvangar á sviði matvæla í löndunum og er m.a. gerð grein fyrir starfsemi þeirra.
- Fyrri síða
- Næsta síða