Fréttasafn



1. jún. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Samtök leikjaframleiðenda

Samtök leikjaframleiðenda tóku þátt í EVE Fanfest 2026

Sex íslensk leikjafyrirtæki kynntu starfsemi sína á EVE Fanfest ráðstefnunni sem fram fór í Hörpu dagana 14. til 16. maí. Fyrirtækin vöktu verðskuldaða athygli í sex sýningarbásum undir formerkjum Samtaka leikjaframleiðenda, IGI - Icelandic Gaming Industry. EVE Fanfest hefur fest sig í sessi sem einn af stærstu alþjóðlegu leikjaviðburðum sem haldnir eru á Íslandi og dregur að sér gesti frá öllum heimshornum.

Fenris Creations (áður CCP Games) bauð fyrirtækjunum að taka þátt í viðburðinum og lagði þeim til sameiginlega aðstöðu, sem endurspeglar þann mikilvæga stuðning sem fyrirtækið veitir íslenskum leikjaiðnaði og áframhaldandi uppbyggingu hans. Fyrirtækin sem nýttu sér aðstöðuna voru Bunkhouse Games, Myrkur Games, 1939 Games, Aska Studios, Porcelain Fortress og Parity.

Básarnir mynduðu öfluga miðstöð og sameiginlega aðstöðu fyrir íslensk leikjafyrirtæki til að kynna verkefni sín, mynda dýrmæt tengsl og auka sýnileika íslenska leikjaiðnaðarins gagnvart þeim fjölmörgu alþjóðlegum gestum sem sóttu ráðstefnuna.

Básarnir eru í eigu IGI og voru fjármagnaðir af Íslandsstofu. Markmiðið með gerð þeirra er að nýta þá áfram á ráðstefnum og viðburðum hér á landi sem og erlendis til að styðja við kynningu og alþjóðleg tengsl íslenska leikjaiðnaðarins.

Samtök leikjaframleiðenda, IGI - Icelandic Gaming Industry, er vettvangur íslenskra leikjafyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins þar sem fyrirtæki í greininni vinna saman að sameiginlegum hagsmunamálum, bættu starfsumhverfi og frekari uppbyggingu leikjaiðnaðarins á Íslandi.

Fanfest-2026Freyr Friðfinnsson hjá SI og Halldór Snær Kristjánsson hjá Myrkur Games.

IMG_0492

IMG_0459

IMG_0501

IMG_0504

IMG_0558

IMG_0579

IMG_0544