Gervigreind og atvinnustefna rædd á fundi Tækni- og hugverkaráðs SI
Gervigreind og atvinnustefna Íslands til 2035 voru til umræðu á viðburði Tækni- og hugverkaráðs SI sem fór fram á Kjarval í gær. Formaður Tækni- og hugverkaráðs SI, Hulda Hallgrímsdóttir, hóf viðburðinn með stuttu ávarpi þar sem hún greindi frá helstu viðfangsefnum ráðsins síðastliðinn vetur og þeim árangri sem náðst hefur í tækni- og hugverkaiðnaði. Hulda nefndi meðal annars að allt stefndi í að tækni- og hugverkaiðnaður geti orðið stærsta útflutningsstoðin fyrir lok næsta áratugar ef rétt verður á málum haldið. Þá var efnt til pallborðsumræðna sem Gunnar Sigurðarson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, stýrði með þátttöku eftirtaldra: Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnar, Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania, Róbert Helgason, stofnandi og framkvæmdastjóri Fordæmi, og Kristján Ingi Mikaelsson, fjárfestir.
Þegar umræðum lauk tók við tengslamyndun og gott spjall þar sem málin voru rædd frekar.
Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnar, Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania, Gunnar Sigurðarson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, Róbert Helgason, stofnandi og framkvæmdastjóri Fordæmi, og Kristján Ingi Mikaelsson, fjárfestir.
Hulda Hallgrímsdóttir, formaður Tækni- og hugverkaráðs SI, opnaði viðburðinn með stuttu ávarpi.



