Erla Tinna er nýr fulltrúi SI í stjórn KLAK
Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri tækni- og hugverkaiðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins (SI), hefur tekið sæti í stjórn KLAK fyrir hönd samtakanna. KLAK er óhagnaðardrifið félag sem er eigu SI ásamt Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Skyggnis og Nýsköpunarsjóðsins Kríu. Hlutverk KLAK er að stækka og styðja við samfélag frumkvöðla á Íslandi með það að markmiði að fjölga sprotafyrirtækjum. Erla Tinna tekur við af Sigríði Mogensen, sviðsstjóra hjá SI, í stjórninni.
KLAK hjálpar frumkvöðlum að raungera hugmyndir sínar, fjölgar sprotafyrirtækjum sem byggja á hugviti og eykur þannig sjálfbæra verðmætasköpun Íslands. Félagið hjálpar sprotafyrirtækjum að vaxa innanlands og út fyrir landsteinana með því að hraða þróun þeirra og tengja þau við sérfræðinga, fjárfesta og aðra lykilaðila. KLAK hefur skipað sér sess sem lykilaðili í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi og leggur sig fram við að vera leiðandi afl í grasrót frumkvöðlasamfélagsins.

